Greinar & sögurSögur

Hundur týndur í tvo daga

Guðfinna Kona1 mín. lestur

Lilli er ungur Miniature Pinscher rakki sem týndist frá Bjarkarási við Stjörnugróf 9 um kl. 22:00 föstudagskvöldið 16. apríl síðastliðinn.

Hann sást nokkrum sinnum um nóttina við Hreyfilshúsið og á brúnni frá skeifunni yfir í Fossvoginn en náðist ekki. Það hófst mikil leit en engar vísbendingar bárust. Í gærnótt var búrið hans sett við Stjörnugróf með mat og um morguninn þegar var komið að athuga með búrið kom hann hlaupandi og hoppaði upp í bíl hjá Þórunni sem er ræktandinn af Lilla.

Það urðu miklir fagnaðarfundir þegar heim var komið eins og sést á meðfylgjandi myndbandi en Lilli er blautur, kaldur, svangur og þreyttur en að öðru leyti hress.

Fleiri greinar & sögur

Sögur

Flóki 6 mánaða hvolpur týndur í 56 tíma!

Flóki er rétt rúmlega 6 mánaða gamall bordercollie blendingur sem var á fósturheimili Dýrahjálpar íslands, hann varð viðskila við fósturfjölskyldu sína á…

Sögur

Bella fannst eftir 6 daga

Bella ofurhundur Þann 1. nóvember síðastliðin hófst leit af Bellu 3 ára Miniature pinscher tík sem fór úr garði í Ástjörn þar…

Sögur

Ævintýragjarn 11 ára Plútó

Hundasveitinni barst tilkynning að lítill 11 ára gamall Silky Terrier hafði týnst upp á Ásbrú í Reykjanesbæ þann 22. október síðastliðinn um…