Árekstursprófað bílbeisli fyrir hunda

14,990 kr.

Load Up bílbeislið frá Ruffwear er hannað með öryggi hundsins í fyrirrúmi og ætlað til notkunar í bíl.

Beislið er með styrktarplötur bæði að framan og aftan sem hjálpa til við að vernda hundinn við skyndilegt högg eða árekstur. Allar festingar eru úr álagsprófuðum efnum og beislið hefur staðist árekstursprófanir hjá óháðum aðila (MGA research corporation).

Beislið er fest í venjulegt bílbelti með sérstakri lykkju aftan á beislinu og passar því í flesta bíla án aukabúnaðar.

Þægileg hönnun tryggir góða hreyfingu og stuðning á meðan keyrt er, án þess að þrýsta óþægilega á hundinn.

Mikilvægt er að mæla brjóstkassa hundsins til að velja rétta stærð. Sjá meðfylgjandi myndband.

Svör við fleiri spurningum og myndbönd úr árekstrarprófum má sjá hér