Flóki 6 mánaða hvolpur týndur í 56 tíma!

Flóki er rétt rúmlega 6 mánaða gamall bordercollie blendingur sem var á fósturheimili Dýrahjálpar íslands, hann varð viðskila við fósturfjölskyldu sína á lausagöngu á hundasvæðinu í Paradísardal laugardaginn 13. Nóvember um kl 14. Um leið og það kemur í ljós að hann er ekki að fara að finnast innan skamms tíma þá er blásið til […]

Bella fannst eftir 6 daga

Bella ofurhundur Þann 1. nóvember síðastliðin hófst leit af Bellu 3 ára Miniature pinscher tík sem fór úr garði í Ástjörn þar sem hún var í heimsókn. Eigendur Bellu voru fljótt var við að Bellu var saknað og tilkynntu hvarf hennar á facebook síðu týndra dýra á Selfossi og nágrenni. Margir urðu varir við að […]

Ævintýragjarn 11 ára Plútó

Hundasveitinni barst tilkynning að lítill 11 ára gamall Silky Terrier hafði týnst upp á Ásbrú í Reykjanesbæ þann 22. október síðastliðinn um 21:00. Hundurinn heitir Plútó og var úti með eiganda sínum þegar hár skellur heyrist nálægt þeim og Plútó gamli hræddist og hljóp í burtu út í myrkrið. Eigendur hundsins vissu ekki að hérna […]

Nóa gamla fannst eftir 38 tíma ferðalag

Nóa er 13 ára gömul tík, blendingur með border collie í sér. Nóa týndist frá heimili sínu þann 30. september um klukkan 22:00. Leitarlið var gert var um ferð Nóu. Leit hófst og hefði ekkert sést til hennar þetta kvöld. Það var ekki fyrr en morguninn eftir sem sást til blendings á hlaupum í átt […]

Moli hvarf ofan í holu á hundasvæði

Kristjana Þorgeirsdóttir fór með tvo hunda á hundasvæðið Bala milli Garðabæjar og Hafnarfjarðar í dag, þann 18. maí. Klukkan rúmlega korter yfir sex var hún að fylgjast með 5 mánaða hvolpinum sínum, Mola, og hundi sem hún var með í pössun að leika sér þegar hún missir sjónar á Mola í sekúndu og það er […]

Bjartur fannst í skurði

Bjartur er 14 ára er gulur eldri rakki sem „heyrir illa og er slæmur í liðum og fer því hægt yfir“. Hann týndist milli 4:00 og 4:30 þegar honum var hleypt út að pissa með öðrum hundi á heimilinu. Hann var samtals týndur í um 5 klukkutíma en fannst á endanum ofan í skurði 500 […]

Hundur týndur í tvo daga

Lilli er ungur Miniature Pinscher rakki sem týndist frá Bjarkarási við Stjörnugróf 9 um kl. 22:00 föstudagskvöldið 16. apríl síðastliðinn. Hann sást nokkrum sinnum um nóttina við Hreyfilshúsið og á brúnni frá skeifunni yfir í Fossvoginn en náðist ekki. Það hófst mikil leit en engar vísbendingar bárust. Í gærnótt var búrið hans sett við Stjörnugróf […]

14 ára Perla fundin á lífi eftir 7 daga

Perla fannst í dag eftir 7 daga leiðangur. Perla er 14 ára silky terrier tík sem týndist frá heimilinu sínu við Tjarnargötu í Keflavík, sunnudaginn 11. apríl um hádegisbil. Perla er blind og heyrnaskert og því var ekki haldið að hún hefði komið sér langt. Leit var hafin samstundis og komu sjálfboðaliðar Dýrfinnu og Hundasveitarinnar […]

Appelsína kemst heim eftir að hafa verið týnd í 5 ár

Kisan Appelsína fór í pössun á Vesturgötu í 101 Reykjavík árið 2016 og það gekk það vel að hún fékk að fara út og inn að vild, einn daginn kom hún þó ekki aftur. Auglýst var eftir henni á samfélagsmiðlum og leitað í nágrenninu en bar það ekki árangur. Engar vísbendingar bárust um Appelsínu og […]

Fannst í Kópavogi með ól af öðrum týndum ketti

Elvis kom ekki heim föstudaginn 12. febrúar síðastliðinn á heimili sitt í Samtúni, 105 Reykjavík. Eigandinn Böddi Reynis auglýsti eftir honum með öllum tiltækum leiðum en fékk engar vísbendingar. 17 dögum seinna fær hann símtal frá Sunnevu Tómasdóttur sem býr á Rauðarárstíg sem segir honum að Elvis sé fundinn.