Bjargvætturinn – hljóðlaus örmerkjalesari með Bluetooth

9,950 kr.

Bjargvætturinn er handhægur örmerkjalesari fyrir dýr sem gerir þér kleift að lesa örmerki fljótt og örugglega – án hljóðmerkja sem geta stressað dýrin.

Þessi útgáfa er sérstaklega hljóðlaus, sem hentar vel þegar skanna þarf óörugg eða hrædd dýr. Niðurstöður birtast beint á skjánum og hægt er að halda áfram skönnun án truflana.

Tækið tengist einnig með Bluetooth, þannig að hægt er að flytja lestur beint í tölvu eða skráningarkerfi án handvirkrar innsláttar.


Helstu kostir
• Hljóðlaus skönnun sem stressar dýr síður
• Les öll örmerki samkvæmt ISO 11784/11785 staðli
• Bluetooth tenging til að flytja gögn sjálfkrafa
• Geymir allt að 128 lestur í innbyggðu minni
• OLED skjár sem sést vel bæði inni og úti
• Endurhlaðanlegt með USB (snúra fylgir)
• Létt og þægilegt í hendi – aðeins um 100 g


Hentar sérstaklega fyrir
• Leit að týndum dýrum
• Dýraeftirlit og björgunarsveitir
• Dýralækna og athvörf
• Skönnun á stærri dýrum eins og hestum
• Aðstæður þar sem dýr eru ekki samvinnuþýð


Tæknilegar upplýsingar
• Lestrartíðni: 134.2 kHz / 125 kHz
• Lesfjarlægð: um 8–20 cm (fer eftir örmerki og aðstæðum)
• Innbyggð 3.7V endurhlaðanleg rafhlaða
• USB 2.0 tenging
• Stærð: 16.8 × 6 × 1.5 cm
• Þyngd: 100 g


ATH Þar sem tækið er hljóðlaust þarf notandi að fylgjast með skjánum til að sjá hvenær lestur tekst eða endurtaka þarf skönnun.

10 á lager