Ferðaruslatunna fyrir hundapoka – festist á bíl

2,500 kr.

Ferðaruslatunnan frá Kurgo er einstaklega hentug á ferðalögum, í gönguferðum eða þar sem ruslatunnur eru ekki við höndina.

Tunnan er úr endingargóðu sílikoni og lokast með sterkum seglum sem halda lykt inni. Á bakhlið hennar eru festingar sem gera þér kleift að festa tunnuna utan á bílinn á einfaldan hátt.

Rúmar 1–2 fulla hundapoka og er því tilvalin fyrir lengri göngur eða ferðalög með hundinn.

Stærð:
12,7 cm á lengd
13,9 cm á hæð
6,3 cm á breidd

Ath. Seglarnir virka ekki á ál- eða fiberglass yfirborði.

11 á lager