2,000 kr.
Vönduð og endingargóð kattaól frá ROGZ með endurskini og stillanlegri öryggissmellu sem eykur öryggi kattarins utandyra.
Ólin er með sérstaka SafeLoc öryggissmellu sem hægt er að stilla eftir þyngd kattarins. Hún kemur í veg fyrir að ólin losni við venjulega notkun, en opnast ef kötturinn festist þannig að hann geti losað sig úr hættu.
Endurskinsrönd gerir köttinn sýnilegri í myrkri og bjallan hjálpar þér að heyra hvar hann er.
Helstu eiginleikar
• Stillanleg SafeLoc öryggissmella
• Þrjár stillingar eftir þyngd: +3 kg, +5 kg og +9 kg
• Endurskinsrönd fyrir aukið öryggi í myrkri
• Létt og þægileg í notkun
• Með bjöllu
• Stillanleg lengd: 20–31 cm
• Breidd: 1 cm
• Stærð: Small
Ólin hentar einnig vel með Tractive GPS tækjum fyrir ketti.
ATH GPS tæki fylgir ekki með.



