
Hópur sjálfboðaliða sem hjálpa týndum dýrum að komast heim.
Allur ágóði af seldum vörum rennur allur til starfsemi Dýrfinnu 🧡
Á Höfuðborgarsvæðinu týnast að meðaltali 3 hundar á dag, oft á kvöldin eða um helgar þegar hundaeftirlit er ekki að störfum. Sem betur fer bregst samfélagið fljótt við á Facebook, en í ákveðnum tilfellum þarf að skipuleggja eiginlega leit, sérstaklega þegar hundar týnast úr pössun.
Stærstu hindranirnar eru:
Dýrfinna vill breyta þessu.
Við gerum almenningi kleift að lesa örmerki, hjálpum til við leitir og styðjum bæði eigendur og sveitarfélög með áreiðanlegum upplýsingum og betri þjónustu.


Það er fjöldi dýra á hverju ári sem týnist á Íslandi, sem betur fer kemst stór hluti þeirra aftur heim, en því miður ekki öll.
Dýrfinna er smáforrit í þróun sem ætlað er að auðvelda týndum dýrum að komast heim með því að hjálpa fólki að skipuleggja leit að týndum dýrum, halda utan um upplýsingar og hjálpast að við leitina. Einnig getur notandi smáforritsins fengið tilkynningar um týnd dýr í hverfinu og skoðað lista af týndum dýrum ef viðkomandi finnur dýr úti sem grunur er á að sé týnt.